Valfrelsi.is

Lögum rammann utan um áfengissölu

Valfrelsi.is er upplýsingasíða um hvernig áfengissölu er háttað á Íslandi og hvernig megi skapa skýrari ramma utan um þennan markað og tryggja gott eftirlit með vefverslun með áfengi.

01
90.000 Íslendingar velja nú þegar meira frelsi
Meðal þeirra sem bjóða áfengi til sölu í gegnum vefverslun eru stórir smásöluaðilar eins og Heimkaup, Hagkaup og Costco og sérverslanir eins og Smáríkið og Sante. 90.000 Íslendingar hafa samkvæmt könnunum verslað áfengi af þessum aðilum á síðustu árum.
02
Það vantar skýrar reglur
Ábyrgar sérverslanir og smásöluaðilar með áfengi sinna aldurseftirliti með rafrænum skilríkjum í vefviðskiptum og við afhendingu á vörum. Á þriðja tug fyrirtækja bjóða upp á áfengissölu til Íslendinga í gegnum erlenda vefverslun innan EES-samningsins. Með skýrum reglum má tryggja að allir fari eftir kröfum um aldurseftirlit, opnunartíma, aðgengi og markaðssetningu.
03
Að festa í sessi núverandi aðgengi er ekki sama og að auka það

Lagabreyting snýst um að viðurkenna stöðuna eins og hún er og setja ramma sem tryggir velferð, fræðslu og forvarnir.

Breytingar á áfengislöggjöfinni hafa oft tekið tíma og Alþingi verið seint til að bregðast við breyttum viðhorfum í landinu. Sala bjórs var t.d. bönnuð á Íslandi frá árinu 1915 og allt til ársins 1989. Bannið hafði öfug áhrif að því leyti að það jók hlut sterks áfengis í áfengismenningu Íslendinga.

04
Markaðurinn hefur breyst en lögin ekki... ennþá
Níu þingmenn Viðreisnar hafa lagt til að breyta áfengislögunum frá 1998 og bæta við ákvæði um vefverslun með áfengi. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er bæði lögfræðimenntaður og einn reyndasti lögreglumaður landsins, Grímur Grímsson. Frumvarpið á breiðan stuðning á Alþingi en ekki náðist að ljúka umræðu um það í vor.
05
Við drekkum minna áfengi, ekki meira
Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur neysla áfengis á Íslandi minnkað um tæp 11% frá árinu 2021. Þetta hefur gerst á sama tíma og vefsala og sérvöruverslanir hafa verið að ryðja sér til rúms hér á landi og á sér stað þrátt fyrir fjölgun ferðamanna.
06
Aukið valfrelsi er líka landsbyggðarmál
ÁTVR hefur verið að loka verslunum á landsbyggðinni en á sama tíma hafa sjálfstæðar sérvöruverslanir opnað útibú á fjölmörgum stöðum, líka á landsbyggðinni.
07
Nær enginn vill snúa til baka – fólk vill val
Mjög fáir tala fyrir því að fara til baka í algjöra einokun ÁTVR. Brugghús mega til dæmis selja vöru sína á framleiðslustað eftir breytingu sem Alþingi gerði árið 2022. Einkasala ríkisins í ÁTVR verslunum getur haldið áfram, samhliða því sem vefverslun fær skýran ramma.
08
Sömu reglur eiga að gilda fyrir íslensk og erlend fyrirtæki
Núverandi ástand mismunar innlendum fyrirtækjum. Erlendir aðilar geta selt áfengi í gegnum vefverslun og sent til Íslands en núgildandi áfengislög gera ekki ráð fyrir þessum möguleika fyrir íslensk fyrirtæki.
09
Aðrar þjóðir í Skandinavíu hafa nú þegar tekið skrefið
Finnar breyttu nýlega áfengislögunum sínum til að heimila vefsölu einkaaðila. Norðmenn og Svíar hafa slakað á sínum reglum. Hæstiréttur Svíþjóðar hafnaði nýverið kröfu Systembolaget á hendur einkarekinni vefsölu. Danir leyfa alveg frjálsa sölu.
10
Einkaaðilum er treyst til að selja margar vörur sem eftirlit er með
Fjölmargar vörur sem teljast ekki til venjulegra neysluvara, s.s. lyf, flugeldar, nikótínvörur og skotvopn hafa um árabil verið seldar af einkaaðilum. Fáir ef nokkrir tala fyrir því að ríkið ætti að sjá um sölu og dreifingu á þessum vörum.